Stjórn kom saman í dag

Kæru félagsmenn.

Félagsfundur Frama var haldinn í Herkastalanum þann 19.06.2025 vegna óvissu um stjórnarsetu.  Stjórnarseta kjörinna fulltrúa var staðfest á félagsfundinum með afgerandi kosningu.

Stjórnarmenn komu saman í dag 9.júlí og er nú starf félagsins í eðlilegum farvegi, að frátöldu húsnæðinu sem bíður þess að endurbótum ljúki eftir sumarleyfi vertakans.

Reiknað er með því að opna skrifstofu félagsins í ágúst.

Félagsmönnum er velkomið að leita til formanns vegna þjónustu eða fyrirspurna í síma 8662233 og netfang frami@taxi.is

Stjórn Frama þakkar stuðninginn og auðsýndan skilning á framkvæmdum.

Góðar stundir