Kæru félagsmenn
Hækkun Bifreiðastjórafélagsins Frama á gjöldum var samþykkt á stjórnarfundi 27. apríl sl.
Hækkunin kemur til framkvæmda frá og með júlí þessa árs og nemur 500 kr.
Mánaðarlegt félagsgjald er nú 2.800 kr og verður 3.300 kr 1. Júlí.
Eins og menn vita, ákvað stjórn Frama 2020, að fresta hækkun félagsgjalda í lósi þeirra erfiðu aðstæðna sem félagsmenn hafa þurft að búa við til lengdar. Félagsjöld hafa þar af leiðandi staðið óbreytt í meira en fimm ár, eða frá síðustu hækkun í janúar 2016, þá úr 2.500 í 2.800 kr.
Hefðin hefur verið sú að hækka félagsgjöldin hóflega á eftir hækkunum ökutaxta leigubifreiða.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að tekjur hafa dregist saman hjá félagi Frama vegna samdráttar í stéttinni, sem nú hefur staðið yfir vel á annað ár með innlögnum leyfa og færri útgáfum akstursheimilda. Á sama tíma hefur allur kostnaður hækkað og ekki er hægt að bíða lengur með viðhald á þeim hluta húsnæðis Frama sem liggur undir skemmdum. Við krefjandi aðstæður hefur stjórn Frama kosið að lágmarka rekstrarkostnað skrifstofu af mestu getu, þó svo að síst hafi mátt draga úr starfseminni nú á tímum.
Með virðingu og þökkum
Gleðilegt sumar
Stjórn Frama