Atvinnuleysisbætur fyrir LEYFISHAFA

Kæru félagar

Verið er að vinna í máli atvinnuleysisbóta fyrir leyfishafa. Mikið hefur borið á mistúlkun réttinda leigubifreiðastjóra og viljum við fá þau mál á hreint.

Samkvæmt því sem okkur hefur verið tjáð, eru atvinnuleysisbætur afturvirkar til 15. mars 2020 og skal framtatali 2020 hafa verið skilað.

Því miður hefur Vinnumálastofnun ekki viljað leiðbeina okkur um umsóknarferli, annað en það sem kemur fram á vefsíðu vinnumálastofnunar í atvinnuleit, þrátt fyrir ítrekaðar óskir um nánari leiðsögn fyrir leigubifreiðastjóra.

Við hörmum það.

Stjórn Frama