Kæru félagsmenn.
Félagsfundur Frama var haldinn í Herkastalanum þann 19.06.2025 vegna óvissu um stjórnarsetu. Stjórnarseta kjörinna fulltrúa var staðfest á félagsfundinum með afgerandi kosningu.
Stjórnarmenn komu saman í dag 9.júlí og er nú starf félagsins í eðlilegum farvegi, að frátöldu húsnæðinu sem bíður þess að endurbótum ljúki eftir sumarleyfi vertakans.
Reiknað er með því að opna skrifstofu félagsins í ágúst.
Félagsmönnum er velkomið að leita til formanns vegna þjónustu eða fyrirspurna í síma 8662233 og netfang frami@taxi.is
Stjórn Frama þakkar stuðninginn og auðsýndan skilning á framkvæmdum.
Góðar stundir