Tilnefning.
Kjörstjórn Frama kom saman til fundar miðvikudaginn 20. apríl 2022 kl.18:00. Engin framboð höfðu borist frá almennum félagsmönnum til Kjörstjórnar, en frestur sá sem auglýstur var, rann út kl.16:00 þann sama dag.
Vegna þessa hefur stjórn félagsins tilnefnt í stjórn samkv. 10.gr. laga félagsins til þriggja ára, þá Halldór Guðmundsson og Snæbjörn Óla Jörgensen.
f.h. kjörstjórnar
Einar Valsson, formaður