Kjörstjórn Frama auglýsir eftir framboðum til stjórnar Frama fyrir kjörtímabilið 2022 til 2023. Kjósa skal um tvo félagsmenn í stjórn félagsins til þriggja ára.
Félagsmaður getur boðið sig fram til stjórnarsetu ef hann leggur fram meðmælendalista með nöfnum fimm gildra félaga. Listar skulu hafa borist skrifstofu Frama fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 20. apríl 2022.
Hér að neðan má sjá 9., 10., 11. Og 12. gr. laga Frama um stjórnarkjör.
9. grein
Kosning í stjórn félagsins skal fara fram á aðalfundi þess. Í stjórn félagsins eiga sæti fimm manns sem kosnir eru til þriggja ára og tveir til vara sem kosnir eru til eins árs. Tilnefning varamanna fer fram á aðalfundi með þeirra samþykki. Forfallist maður í stjórn, skal kosinn maður í hans stað á næsta aðalfundi, en á meðan tekur varamaður sæti hans. Einnig skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara.
Stjórn félagsins skipar þrjá kjörgenga félagsmenn í kjörstjórn og tvo til vara. Þetta skal gert fyrir lok febrúar ár hvert.
10. grein
Kjörstjórn skal auglýsa eftir framboðum. Framboðsfrestur skal vera minnst sjö sólarhringar og skal framboðum skilað til kjörstjórnar, áður en sá frestur er liðinn. Auk þess er stjórn félagsins heimilt að tilnefna menn til stjórnarkjörs án skilyrða um undirskriftir.
11. grein
Félagsmaður getur boðið sig fram til stjórnarsetu ef hann leggur fram meðmælendalista með nöfnum fimm gildra félaga.
12. grein
Þegar framboðsfrestur er útrunninn skal kjörstjórn auglýsa stjórnarkjörið með minnst fimm daga fyrirvara með auglýsingum á bifreiðaafgreiðslum. Skal í auglýsingunni tilgreina nöfn allra frambjóðenda.
Reykjavík 5. apríl 2022
F.h. Kjörstjórnar
Einar Valsson formaður
Garðar Garðarsson
Lúther Pálsson