Kæru félagar
Komið er að endurnýjun hóptrygginga Frama og BÍLS og fengum við betra verð á slysa- og sjúkdómatryggingum fyrir endurnýjun í júlí 2021.
Slysatryggingin kostar 39.740 kr.
Slysa og sjúkdómatrygging 120.500 kr til allra aldurshópa.
Bótatími vegna sjúkdóma er til 65 ára aldurs.
Afleysingabílstjórar geta einnig keypt tryggingar.
Dánarbætur eru 5.000.000 kr.
Varanleg örorka er 10.000.000 kr.
Vikubætur eru 50.000 kr. í allt að 104 vikur, biðtími eru 14 dagar.
Tryggingin tekur gildi frá greiðsludegi.
Greiða skal inn á reikning Frama, kennitalan er 560169-1329. Banka og reikningsnúmer er 0140-05-073256. Kennitala tryggingataka verður að fylgja með svo vitað sé hver greiðandi er. Ef einhverjar frekari upplýsingar óskast þá vinsamlegast hafðu samband við skrifstofu Frama í síma 568-5575 eða á netfanginu frami@taxi.is.
Með bestu kveðju
Stjórn Frama