Tilnefning.
Kjörstjórn Frama kom saman til fundar mánudaginn 12. apríl 2021 kl.14:00. Engin framboð höfðu borist frá almennum félagsmönnum til Kjörstjórnar, en frestur sá sem auglýstur var, rann út kl.16:00 föstudaginn 9. apríl s.l.
Vegna þessa hefur stjórn félagsins tilnefnt í stjórn samkv. 10.gr. laga félagsins til þriggja ára, þá Sigurð B. Hjörleifsson og Smára B. Ólafsson.
Aðalfundur Bifreiðastjórafélagsins Frama verður auglýstur eftir að sóttvarnir hafa dregið úr núgildandi samkomubanni.
F.h. kjörstjórnar
Arnbjörg Ólafía Sveinsdóttir formaður