Kjörstjórn 2021 auglýsir

Kjörstjórn Frama kom saman 18. mars 2021.  Hana skipa Arnbjörg Ólafía Sveinsdóttir, Einar Valsson og Jón Ólafsson. Arnbjörg var kjörin formaður kjörstjórnar.

Samkvæmt 9., 10., 11. og 12. grein laga Frama um stjórnarkjör, auglýsir kjörstjórn eftir framboðum til stjórnar Frama fyrir kjörtímabilið 2021 til 2022.

Kjósa skal um tvo félagsmenn í stjórn félagsins til þriggja ára.

Félagsmaður getur boðið sig fram til stjórnarsetu ef hann leggur fram meðmælendalista með nöfnum fimm gildra félagsmanna. Listar skulu hafa borist skrifstofu Frama fyrir kl.16:00 föstudaginn 9. apríl 2021.