Kæru félagar.
BÍLS hefur veitt umsögn frumvarpi fjármála og efnahagsráðherra um tekkjufallsstyrki til sjálstæðra atvinnurekenda. Frumvarpinu er ætlað að viðhalda atvinnustigi og efnahagsumsvifum með því að styðja við þá sem hafa orðið fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldursins og aðgerða stjórnvalda í því að hefta útbreiðslu.
Leyfishafar leigubifreiða standa straum af þungum rekstrarkostnaði, þar sem atvinnuleysibætur duga ekki nema til að bæta upp launaliðinn. Því þætti okkur eðlilegt að leyfishafar nytu styrksins þar sem þeir ættu að falla undir þau skilyrði sem gilda fyrir umsóknir.
Sjá krækju á vef Alþingis:
https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalin/erindi/?ltg=151&mnr=212