Aðalfundur 2020

Kæru félagar

Í dag 16. apríl 2020 er liðið heilt ár frá því síðasti aðalfundur félagsins var haldinn. Stjórn Frama vill koma því á framfæri, þar sem óviðráðanlegrar aðstæður Covid-19 og samkomubann gilda, er því miður ekki fyrirséð hver möguleg dagsetning aðalfundar 2020 geti orðið í fyrsta lagi.

Um leið og aðstæður breytast, munum við að sjálfsögðu láta ykkur vita hér á heimasíðu félagsins www.taxi.is

Fram að því viljum við þakka öllum félögum Frama fyrir skilninginn og óska ykkur velfarnaðar.

Stjórn Frama