Gleðilega páska

Stjórn Frama óskar öllum félagsmönnum og afleysingafólki gleðilegra páska. Afgreiðsla Frama er lokuð til þriðjudagsins 14. apríl. Þá mun afgreiðslan vera á sama tíma alla virka daga í gegnum síma og tölvupóst eins og hefur verið síðan 16. mars s.l. vegna Covid-19.

Því miður hafa ekki enn fengist skýr svör við mörgum erinda okkar, en þau hljóta að koma fljótt eftir páska.

Hvað varðar skyldutrygginar leigubifdreiða, þá má búast við einhverri eftirgjöf, samkvæmt tölvupósti frá einu tryggingafélagi.

Isavia hefur fallist á að “frysta” tímabil í áskrift á gjaldstæði leigubifreiða mánuð í senn og sjá hvernig málin þróast. Áskriftin mun vera uppfærð eftir þörfum, var okkur tjáð af sarfsmanni Isavia Keflavíkurflugvelli.

Gleðilega páska

Stjórnir Frama og BÍLS