Lög félagsins

I.  Kafli

 

ALMENN ÁKVÆÐI

 

 

1. grein

Félagið heitir Bifreiðastjórafélagið Frami. Starfssvæði þess er Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes, Reykjanesbær, Miðnes-, Gerða-, Vatnsleysustrandarhreppur og Grindavíkurbær.

 

2. grein

Tilgangur félagsins er;

a.       að gæta hagsmuna félagsmanna og vinna að samstöðu leigubifreiðastjórastéttarinnar í heild;

b.      að standa vörð um kjör félagsmanna;

c.       að hafa eftirlit með að félagsmenn veiti góða þjónustu og að þeir uppfylli þau skilyrði sem sett eru í lögum og reglugerðum um leigubifreiðar á hverjum tíma;

d.       að halda uppi takmörkun á fjölda leigubifreiða til mannflutninga á félagssvæðinu;

e.       að koma fram fyrir hönd félagsmanna gagnvart stjórnvöldum.

 

3. grein

          Rétt til að ganga í félagið hafa þeir, sem öðlast hafa rekstrarleyfi til aksturs 4 – 8 farþega leigubifreiða á félagssvæðinu og vilja hlýða lögum félagsins og venjum.

Stjórnin hefur heimild til að hafna umsóknum um félagsaðild, telji hún inngöngu umsækjanda félaginu ekki til framdráttar.

 

 

 

 

4. grein

 

         Félagið skal gefa út félagsskírteini fyrir félagsmenn.   

Félagsmaður glatar félagsréttindum sínum um leið og hann missir rekstrarleyfi sitt eða hættir rekstri leigubifreiðar, þó mega félagsmenn sem leggja inn rekstrarleyfi sitt eða hætta rekstri til skamms tíma, halda félagsréttindum í allt að sex mánuði, enda greiði þeir félagsgjöld í þann tíma.

Félagsmaður glatar félagsréttindum sínum um leið og hann missir rekstrarleyfi sitt eða stendur ekki skil á félagsgjöldum eftir ítrekun.

            Félagsmenn, sem hætta akstri um lengri eða skemmri tíma til að rækja störf fyrir félagið eða heildarsamtök, sem félagið er aðili að, mega halda félagsréttindum sínum.

 

5. grein

         Öllum félagsmönnum er skylt að hlýða lögum félagsins og fylgja reglum sem stjórn þess hefur sett.

 

6. grein

         Hver sá félagsmaður, sem verður þess vís, að brotnar hafa verið reglur, sem félagið hefur sett, skal tilkynna það formanni félagsins eða starfsmanni.

 

II. KAFLI

 

FUNDIR

 

7. grein

         Aðalfundur félagsins hefir æðsta vald í öllum málum þess.  Aðalfund skal halda fyrir lok aprílmánaðar ár hvert.  Aðalfund skal boða með fjórtán daga fyrirvara með uppfestum auglýsingum á bifreiðaafgreiðslum á svæðinu.  Á aðalfundi skal skýra frá störfum félagsins á liðnu ári og leggja fram enduskoðaða reikninga félagsins til umræðu og samþykktar.

         Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir;

1.     Skýrsla stjórnar.

2.     Lagðir fram endurskoðaðir reikningar og bornir upp til samþykkis.

3.     Lagabreytingar ef um er að ræða.

4.     Kynning frambjóðenda.

5.     Kosning til stjórnar.

6.     Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins til vara.

7.     Önnur mál.

         Á aðalfundi ræður afl atkvæða, nema þar sem lög þess gera berum orðum ráð fyrir auknum meirihluta.  Fundagerð aðalfundar staðfestist með undirskrift fundarstjóra og fundarritara.  Fundargerð síðasta aðalfundar skal liggja frammi á skrifstofu félagsins til kynningar fyrir félagsmenn sjö dögum fyrir næsta aðalfund og borin undir atkvæði í upphafi fundar.

 

8. grein

         Formaður skal boða til stjórnarfunda er hann telur þörf á, eins ef meirihluti stjórnar óskar þess.  Félagsfundir skulu haldnir, þegar stjórnin telur þess þörf. Þó er stjórn félagsins skylt að boða til fundar, ef minnst 1/4 hluti félagsmanna óskar þess skriflega, enda sé í hverju tilfelli tilgreint fundarefni.

         Fundir eru löglegir, sé löglega til þeirra boðað.  Fundum félagsins skal stjórna með almennum fundarsköpum.

 

III. KAFLI

 

STJÓRNARKJÖR

 

9. grein

         a.     Stjórn félagsins er kosin á aðalfundi og er æðsta stjórnvald félagsins milli aðalfunda.  Kjörtímabil stjórnarmanna er þrjú ár, en varamanna eitt ár.

        b.     Í stjórn sitja fimm aðalmenn.  Þar sem stjórnin róterast skal aðeins kosið um sæti þeirra stjórnarmanna sem þegar hafa setið fullt kjörtímabil, auk þeira sem kunna að hafa forfallast.  Þá skal kjósa tvo varamenn.  Einnig skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara.

        c.     Sé kosið um sæti stjórnarmanns sem hefur forfallast milli aðalfunda, skal kjörtímabili hans ljúka á sama tíma og kjörtímabil þess stjórnarmanns sem                   forfallaðist hefði ella lokið. 

              Stjórn félagsins skipar þrjá kjörgenga félagsmenn í kjörstjórn og tvo til vara.  Þetta skal gert fyrir lok febrúar ár hvert.

 

10. grein

         Kjörstjórn skal auglýsa eftir framboðum.  Framboðsfrestur skal vera minnst sjö sólarhringar og skal framboðum skilað til kjörstjórnar, áður en sá frestur er liðinn.  Auk þess er stjórn félagsins heimilt að tilnefna menn til stjórnarkjörs án skilyrða um undirskriftir.

 

11. grein

Félagsmaður getur boðið sig fram til stjórnarsetu ef hann leggur fram meðmælendalista með nöfnum fimm gildra félaga.

 

12. grein

         Þegar framboðsfrestur er útrunninn skal kjörstjórn auglýsa stjórnarkjörið með minnst fimm daga fyrirvara með auglýsingum á bifreiðaafgreiðslum.  Skal í auglýsingunni tilgreina nöfn allra frambjóðenda.  

 

13. grein

         Stjórnarkjör skal fara fram á þar til gerðum kjörseðli og skal raða nöfnum þeirra sem í kjöri eru í stafrófsröð.  Kjósandi greiðir atkvæði á þann hátt, að hann merkir í þar til gerðan reit á kjörseðli fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem hann ætlar að kjósa.

         Atkvæði er ógilt ef ekki verður séð við hvaða nafn er merkt eða ef merkt er við fleiri en þau sæti sem kosið er til.

         Þeir frambjóðendur sem flest atkvæði fá hverju sinni skulu réttkjörnir í stjórn félagsins til þriggja ára.  Verði menn jafnir skal hlutkesti ráða.

         Sé sá lágmarksfjöldi félagsmanna í framboði sem þarf hverju sinni skal sjálfkjörið og kosning ekki fara fram.

 

14. grein

         Atkvæðisrétt hafa allir félagsmenn,  sem greitt hafa að fullu tilskilin gjöld sín til félagsins s.l. tvo mánuði.

 

15. grein

         Kjörstjórn skal sjá um, að kjörskrá ásamt lista yfir þá félagsmenn sem eru á kjörskrá, sé tilbúin sjö dögum fyrir kjördag og skal hvort tveggja liggja frammi á skrifstofu Frama fram að aðalfundi.

         Frambjóðendur skulu hafa rétt til að sjá félagaskrá, viku eftir að framboðsfrestur er útrunninn.

         Allar kærur út af kjörskrá skal kjörstjórn úrskurða jafnóðum og þær berast.

         Kærufrestur er til loka kosninga.    

 

16. grein

         Kjörstjórn sér um talningu atkvæða á aðalfundi.

         Frambjóðendur hafa rétt til að vera við talningu atkvæða.

 

17. grein

         Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skal stjórn félagsins kjósa sér formann, varaformann og ritara,  á meðan kosning fer fram skal aldursforseti stjórnar stýra fundi.  Breyting í embættum er heimil hvenær sem er á árinu þyki ástæða til.  Til að ná kjöri þarf hver og einn að fá a.m.k. 3/5 hluta atkvæða stjórnarmanna að öllum stjórnarmönnum viðstöddum.  Náist ekki meirihluti skal hver stjórnarmaður kjósa einn mann og sá sem flest atkvæði fær verður formaður, sá sem næstflest atkvæði fær verður varaformaður og sá sem er þriðji í röðinni verður ritari.  Eins skal kjósa milli varamanna.  Ef menn eru jafnir skal hlutkesti ráða.

 

IV. KAFLI

 

ÝMIS ÁKVÆÐI

 

18. grein

         Ritari félagsins heldur gerðabækur og innfærir í þær félagsfundagerðir, stjórnarfundagerðir og lagabreytingar.

 

19. grein

Hver félagsmaður Frama skal greiða félagsgjald til félagsins samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar.  Sé gjaldið eigi greitt fyrir eindaga skal innheimta af

því dráttarvexti í samræmi við reglur Seðlabanka Íslands.

         Verði vanskil á greiðslu félagsgjalda missir viðkomandi félagsmaður félagsréttindi þar til full skil hafa verið gerð vegna þeirra.

         Stjórn félagsins er heimilt að innheimta þjónustugjöld hjá þeim sem njóta þjónustu félagsins.

 

 

20. grein

         Lögum félagsins má einungis breyta á aðalfundi, enda hafi fyrirhugaðar breytingar verið kynntar í fundarboði.

         Tillaga að lagabreytingum skal berast stjórn félagsins fyrir 15. mars til þess að hún verði löglega borin upp á næsta aðalfundi og auglýst í fundarboði.  Til þess að lagabreyting nái gildi, verður hún að vera samþykkt með meirihluta greiddra atkvæða fundarmanna og tekur hún gildi að loknum aðalfundi.

 

 

 

Samþykkt á aðalfundi 28. apríl 2026